|
Heimilisiðnaðarfélag Íslands var stofnað 12. júlí 1913. Félagið vinnur að því að viðhalda þjóðlegum íslenskum heimilisiðnaði, auka hann og efla og stuðla að vöndun hans og fegurð. Einnig að vekja áhuga landsmanna á því að framleiða fallega og nytsama hluti, er hæfa kröfum nýs tíma en hafa rót sína í hinum gamla og þjóðlega menningararfi. Félagið flutti í Nethyl 2e í Reykjavík í júní 2008. Í húsnæði félagsins eru verslun/þjónustudeild, Heimilisiðnaðarskólinn og skrifstofa félagsins.
Verslun Í verslun / þjónustudeild eru seldar vörur til þjóðbúningagerðar, áhöld og efni í vefnað og í íslenskan útsaum. Einnig eru veittar margvíslegar upplýsingar um það sem viðkemur þjóðbúningunum, ýmsu handverki og heimilisiðnaði, hráefni, vinnubrögðum, handverksfólki, ítarefni o.fl. Þjónustudeildin er eini aðilinn sem selur allt til þjóðbúningagerðar og veitir ítarlegar upplýsingar um búninga.
Heimilisiðnaðarskólinn Félagið rekur Heimilisiðnaðarskólann sem skipuleggur markvisst nám í mörgum greinum heimilisiðnaðar, handmennta og lista.
Útgáfa Hugur og hönd Tímarit félagsins heitir Hugur og hönd og þar eru birtar greinar um handverk og listiðnað og oft einnig mynstur og vinnuteikningar.
Íslensk sjónabók Heimilisiðnaðarfélag Íslands í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands og hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands gaf út Íslenska sjónabók vorið 2009. Íslensk munstur sem varðveitt eru í 10 handritum á Þjóðminjasafninu og Þjóðminjasafni Dana eru hér í einni bók sem telur u.þ.b. 700 bls. Bókinni fylgir geisladiskur með öllum munstrunum sem hægt er að prenta út að vild. Allt til frjálsrar notkunar. Hönnun, nýsköpun, handavinna, menningarerfðir. Verð kr. 16.600.
Rekstur Félagið fær styrki til rekstrar skólans frá ríki og Reykjavíkurborg en að öðru leyti er starfsemi félagsins fjármögnuð með framlögum og sjálfboðaliðsvinnu félagsmanna. Félagsmenn eru nú á sjötta hundrað.
|